clockhere

23.02.2012 15:40

Samfestingur 2012

Samfestingur  2. og 3. mars 2012

 

Til foreldra/forráðamanna.

Frá Félagsmiðstöðinni Tvistinum vegna Samfesting 2012

 

Verð á hátíðina er 6500 kr. Innifalið í verðinu er miðinn á samfesting,  rúta og gisting.

Skráning er hjá Þresti á netfanginu trostur@hvolsvollur.is

Hægt er að greiða í féló á mánudaginn  27. Feb.

45 miðar í boði.

 

Nánari uppl. Þröstur gsm 691-1270                              

 

Föstudagur.

15:40 Mæting í Hvolsskóla.

16:00 Lagt af stað frá Hvolsskóla og keyrt til Laugalækjarskóla þar sem er gist.

19:00-23:00 Ball í Laugardagshöllinni

Laugardagur.

09:00 Vakna og fara í sund fyrir þá sem vilja.

13:00-16:00 Samfés tónlistarkeppni í  Laugardagshöllinni.

17:00 Lagt af stað frá Laugarlækjarskóla til Hvolsskóla

18:30-19:00 Hvolsskóli

 

Ath: Föt til skiptanna, sundföt, dýna og svefnpoki.

Hægt er að versla mat í 10-11 og gott er að koma með pening fyrir pizzu (1000kr) sem pantað er eftir ballið og/eða nesta sig vel.

 

 Reglur um klæðaburð( eða dresscode) á Samfés hátíðinni 2011.

o   Ef klæðast á kjól eða pilsi sem nær EKKI niður fyrir hné skal klæðast lituðum sokkabuxum eða leggins sem ná niður á ökkla (s.s. hjólabuxur ekki í lagi).

o   Varast skal að klæðast of flegnum bolum eða kjólum.

o   Ekki er leyfilegt að vera með skyrtur alveg fráhnepptar né að vera ber að ofan.

o   Vanda skal val á skóm og beita skynseminni í þeim efnum, þetta er langt ball þar sem fá tækifæri gefast til að setjast og hvíla sig- margar stúlkur sem hafa ákveðið að vera í háum hælum eru oftar en ekki komnar úr þeim á leiðinni í höllina. Tíðustu slysin er af völdum hárra hæla, hælsæra og ef búið er að stíga á berar tær.

16.01.2012 21:59

Bless bless á Samfés

Lag Ívars Mána "bless bless" komst áfram í úrslit á Samfés söngvakeppnina í mars.
Margar félagsmiðstöðvar tóku þátt og fóru þrjár félagsmiðstöðvar áfram.

Féló óskar Ívari og meðlimum bandsins til hamingju og ósk um góðs gengis!

Tvistráðið

11.01.2012 18:57

USSS..frekari uppl.

Undankeppni Söngvakeppni Samfés á Suðurlandi (USSS) verður haldin í Þorlákshöfn föstudaginn 13. janúar. Þar munu félagsmiðstöðvar víðsvegar af suðurlandi koma saman og keppa um rétt til þátttöku á Samfés hátíðinni. Keppnin byrjar kl. 19:00 og lýkur kl. 23:00.

Eftir söngvakeppnina mun DJ BoM hita upp mannskapinn og að honum loknum mun hljómsveitin High 4 halda uppi miklu stuði!
Miði á keppnina og ballið auk rútu er kr. 3000. Það má greiða við brottför en nauðsynlegt að skrá sig í féló á fimmtudag.

Foreldrar og forráðamenn sem vilja horfa á keppnina geta keypt miða við inngang íþróttahúsins í Þorlákshöfn. Miðinn kostar 1500 kr.
Mæting er við Hvolsskóla kl. 17:00 og verður lagt af stað kl:17:30. Áætluð heimkoma er á miðnætti.

Nánari uppl. eru hjá Þresti í síma 691-1270 og einnig er hægt að senda tölvupóst á trostur@hvolsvollur.is

02.01.2012 17:45

Nýárs LAN 2012

Lan frá KL: 11:00 til 23:00 á morgun 3. Jan.. Opið hús og skemmtilegt. Þeir sem eru eldri en 16 ára þurfa að skrá sig sérstaklega hjá Þresti OG ATHUGA hvort það sé laust.
Frítt inn en gott að koma með 1000 kall fyrir pizzu.
 
Kv. ÞFS

02.01.2012 17:32

USSS...Undankeppni Söngvakeppni Samfés á Suðurlandi

USSS...Undankeppni Söngvakeppni Samfés á Suðurlandi verður haldin á Þorlákshöfn föstudaginn 13. Janúar. Þar munu félagsmiðstöðvar víðsvegar af suðurlandi koma saman og keppa til þátttöku á Samféshátíðinni seinna í vetur.

Miði og rúta er 3000 kr. Og greiða þarf í féló fimmtudaginn 12. JAN.

Ath: Takmarkað hversu margir komast og því um að gera að taka frá miða og greiða sem allra fyrst.

Tvistráðið.

14.12.2011 15:04

Lan

Lan föstudaginn 16. des. í Féló.
Við byrjum kl: 13:00 og spilum vel frameftir...allir velkomnir, skráning hjá Ara eða
facebook síðu Tvistsins.
..

emoticon

Tvistráðið

13.12.2011 15:03

Miðstig jólaskemmtun

Frá Tvistinum

 

Jólaskemmtun Tvistsins verður á fimmtudaginn næstkomandi í Hvolnum.

Skemmtunin byrjar kl: 18:00 og stendur til kl: 20:00.

Það verður sungið, dansað og farið í skemmtilega jólaleiki.

Allir hvattir til að koma og eiga góða stund saman.

 

Frítt inn, sjoppa á staðnum.

Ekki leyfilegt að yfirgefa Hvolinn til að versla í sjoppum meðan á skemmtun stendur.

 

Jólakveðja frá Tvistinum

 

Þröstur

Gsm 6911270

20.11.2011 13:09

Ótitlað

Ívar Máni lenti í 3. sæti á Rímnaflæði sem haldið var í Rimaskóla. Keppnin var svaka góð og mikil samkeppni á milli keppenda. Góður hópur ungmenna frá Tvistinum hvatti Ívar með frábæru lófataki og því ljóst að myndi ná langt sem og hann gerði.
Tvisturinn óskar Ívari til hamingju og ljóst er að hann á eftir að ná langt í Rappi og Hip hop!!!

Tvistráðið

15.11.2011 15:17

Rímnaflæði 2011

Rímnaflæði 2011

Rímnaflæði fer fram föstudaginn 18. nóvember í félagsmiðstöðinni Hundrað&ellefu (Miðbergi). Keppnin hefst kl. 20.00 en húsið opnar kl. 19.30. Keppnin hefur skapað sér fastan sess í dagskrárliðum félagsmiðstöðva um leið og hún vekur áhuga ungmenna á rappi og gefur því jákvæða umfjöllun. Á hverju ári sjáum við nýja og efnilega rappara sem sýna frábæra laga - og textasmíð. Í ár verður Rímnaflæði haldið í 12. sinn í Miðbergi.

Ívar Máni keppir með frumsamið lag og eigum við von á frábæri stemmingu!

Farið verður frá Hvolsskóla kl: 18:00 og komið heim um miðnætti.
Miðaverð og rúta er 2500kr. Farið er með skólarútu

Takmarkað magn er í boði en selt verður á miðvikudegi í Féló.

Tvistráðið

Lesa má um Rímnafl. Á slóðinni http://samfes.is/index.php/vidburdir/rimnaflaedi2009

03.11.2011 14:58

Lan

Þá er komið að Lan degi í Féló!
Við byrjum að setja upp eftir skóla á föstudegi (4,Nóv) og erum við
búinn kl: 23:00

Muna eftir langri Lan snúru, fjöltengi og 1000 kall fyrir pizzu fyrir kvöldið.

Kv. Tvistráðið  emoticon

12.10.2011 15:35

Féló Ball Miðstig

     Féló Ball Miðstig   emoticon

Mánudagskvöldið 17. Okt. í Hvolnum frá kl: 19:00 til 21:00

Frábærir DJaarrr á staðnum og halda uppi fjöri...allir láta sjá sig!

emoticon 

Frítt inn og sjoppa á staðnum 

TVISTRÁÐIÐ
  • 1