Færslur: 2012 Febrúar
23.02.2012 15:40
Samfestingur 2012
Samfestingur 2. og 3. mars 2012
Til foreldra/forráðamanna.
Frá Félagsmiðstöðinni Tvistinum vegna Samfesting 2012
Verð á hátíðina er 6500 kr. Innifalið í verðinu er miðinn á samfesting, rúta og gisting.
Skráning er hjá Þresti á netfanginu trostur@hvolsvollur.is
Hægt er að greiða í féló á mánudaginn 27. Feb.
45 miðar í boði.
Nánari uppl. Þröstur gsm 691-1270
Föstudagur.
15:40 Mæting í Hvolsskóla.
16:00 Lagt af stað frá Hvolsskóla og keyrt til Laugalækjarskóla þar sem er gist.
19:00-23:00 Ball í Laugardagshöllinni
Laugardagur.
09:00 Vakna og fara í sund fyrir þá sem vilja.
13:00-16:00 Samfés tónlistarkeppni í Laugardagshöllinni.
17:00 Lagt af stað frá Laugarlækjarskóla til Hvolsskóla
18:30-19:00 Hvolsskóli
Ath: Föt til skiptanna, sundföt, dýna og svefnpoki.
Hægt er að versla mat í 10-11 og gott er að koma með pening fyrir pizzu (1000kr) sem pantað er eftir ballið og/eða nesta sig vel.
Reglur um klæðaburð( eða dresscode) á Samfés hátíðinni 2011.
o Ef klæðast á kjól eða pilsi sem nær EKKI niður fyrir hné skal klæðast lituðum sokkabuxum eða leggins sem ná niður á ökkla (s.s. hjólabuxur ekki í lagi).
o Varast skal að klæðast of flegnum bolum eða kjólum.
o Ekki er leyfilegt að vera með skyrtur alveg fráhnepptar né að vera ber að ofan.
o Vanda skal val á skóm og beita skynseminni í þeim efnum, þetta er langt ball þar sem fá tækifæri gefast til að setjast og hvíla sig- margar stúlkur sem hafa ákveðið að vera í háum hælum eru oftar en ekki komnar úr þeim á leiðinni í höllina. Tíðustu slysin er af völdum hárra hæla, hælsæra og ef búið er að stíga á berar tær.
- 1